2008
Nú er árið 2008 runnið í garð og fullt að gerast. Það eru búnir að vera páskar og svo lauk skólaárinu hjá mörgum, fólk útskrifaðist og svona. Nonni og Þrösti, til hamingju með útskriftina.. og svo auðvitað hinn útskúfaði Gæji Guðmundur Atli... og nú eiga aðeins 3 af gæjunum eftir að útskrifast... ef ég man rétt... Undirritaður er enn á þeirri skoðun að hann sé að gera það mun betur en hinir, þar sem hann er búinn að eyða 10 önnum í að vanda sig í hverjum áfanga. Sigþór er að fara aftur í skóla og Magnús lætur skóla lífsins nægja. En svo hafa margar breytingar orðið hjá okkur. Magnús býr aleinn, Sigþór fór í ævintýraleit suður á við og hefur enn ekki lent í ævintýri, glataður ævintýrahunter þar á ferð. Snævar er farinn suður, vinnur þar fyrir gervilimafyrirtækið Össur og er á gáfumannaleið í háskólanám, sömu leið ætla Rúnar litli og Þröstur að fara, þeir plana að verða gáfaðir.. en öll vitum við að þeir geta það seint ;)
Svo þannig verður þetta eftir sumarið, allir farnir nema við 3, Maggi, Nonnzi og Silli...
Svo til að nefna það, þá er óopinberlega einn viðbættur gæji í hópnum, Gulli kennari.
Þá verður þetta einmitt fyrsta opinbera auglýsing ný stofnaðrar hlómsveitar, Gulli & Silli, band sem ætlar sé gríðarlega stóra hluti. eru með eitt planað gigg eins og er, og það er ekki á verri stað en í stórafmæli Rúnars Gæja í byrjun júlí, og viljum við að sem flestir koma, en það verður einmitt fyrsta giggið þeirra og býst múgurinn við meiru heldur en Skímó settu upp með í endurkomu sinni þann 25 maí síðastliðinn, og það var ekkert smáræði, bilív jú mí. æfingar fara mikið fram á vinnustað drengjanna þar sem þeir, beraðir að ofan æfa heita smelli í gríð og erg.
En þetta var kannski wake up call fyrir restina af gæjunum, og við munum kannski vakna, reyndar sefur Nonni pottþétt yfir sig, við búumst við engu af Magga, Gummi er liggur við dáinn í okkar augum, Gulli ætlar að koma sterkur inn og Þrölli vonandi með og Rúnar hefur ekkert betra að gera.. en Sigþór er eins og er upptekinn við að halda úti heimasíðunni www.masch.bloggar.is sem er örugglega alltaf jafn djúp, algjörlega þakin Lucas Scott bloggum úr One Tree Hill.
En sjáum hvað setur.
Sigurgeir Sv Gíslason a.k.a. Silli
Frelsarinn endurfćddur
Já.. ég náði þér með titlinum þarna... eeen
Eins og 4 eða 5 manns vita þá er búið að blása örlitlu lífi í síðuna og blogginn þegar farin að hrannast upp... Tilgangurinn með þessu bloggi er óásættanlega smár... ég vildi bara bæta við öðru bloggi sem engin les við það sem er hérna fyrir neðan... Ég er ekki hér til að telja upp hvað ég gerði í dag... eða í gær... og hvað þá heldur í fyrradag... Mig langaði einfaldlega að segja með hreinskilni að ég er með öllu hættur að fara út ef hitinn fer lengra niður fyrir frostmark en 3°C!!... í dag er til dæmis fimbulkuldi. Á æfingu áðan gat ég ekki beint hugsunum mínum á neitt annað en að ég yrði líklegast úti ef henni lyki ekki fljótlega, svo ég gæti farið heim og lagað mér kakó, vafið mig inni 3 teppi og sett lófana á eldavélarhellurnar. Ég er alltént viss um að ég hafi séð helfrosinn hrafn fastan við þakbrúnina hjá nágranna mínum á leiðinni heim. Skemmtilega ófagurt kvikindi þar á ferð.
Ég skrifaði mun meira en ég reiknaði með að gera, sérstaklega fyrir þær sakir að aðeins fjórir jafnvel fimm, ef vel horfir, munu berja blogg mitt augum.
hvað er þessi broskall eiginlega að gera?!
BÆ
-Þröstur
Nýtt blogg!!!
Ekki hefur verið ritaður stakur stafur hér í hálft ár og rúmlega það og er kominn tími á breytingu. Það hefur fátt á dagana drifið síðan síðast, ég sakna ennþá Fisksa, lífið er svo tómlegt án hans. Þær eru svo margar góðu stundirnar sem við áttum saman, ég horfði á hann...hann horfði á mig, ógleymanlegt, en ég verð að hætta að tala um hann núna áður en ég fer að tárast.
En tilgangurinn með þessu bloggi er reyndar sá að það er fyndið að blogga inn á dauðar síður, það finnst mér allavega, reyndar er húmor minn miskilinn yfirleitt. Það verður gaman að sjá hversu margir taka þátt í þessari nýju könnun, en ef þú ert eini lesandi þessa bloggs þá ekki kjósa Hannes, hann er svo mikið fake e-ð.
Jú svo vil ég minna á stórleik BK Viggó og Hamrana annað kvöld...ef allir sem lesa þetta mæta þá...gerist ekkert reyndar.
En ég kveð með mynd af mér, þegar testosterón var eitthvað sem líkami minn þekkti ekki...í bakgrunni er Rúnar og Sigurgeir með sérstaka hárgreiðslu.
Kveðja, Jón Ólafur
Dimmission!!!!!!
Dimmission Menntaskólans var og var þetta mjög skemmtilegt í alla staði.
Við byrjuðum daginn snemma, eða kl. 5 heima hjá Örnu Maríu.
Þar grilluðum við hamborgara þar sem að ég og Sigurgeir stóðum sveittir við grillið að elda ofan í hópinn (aðallega Sigurgeir samt, ég stóð hjá og rétti honum brauðið og sona).
Svo röltum við um bæinn og vöktum kennarana og restina af bænum.
Síðan löbbuðum við inn í fjörð í morgunkaffi til Ingibjargar skólameistara. Hún og hundurinn hennar voru tilbúin með frábært bakkelsi.
Við fórum svo aftur niður í bæ. Kíktum á gömlu kennarana okkar í grunnskólanum. Þeir voru nú ekki parsáttir með að við værum að spilla börnunum með látunum og áfengislyktinni. Jóhanna (Mamma hans Þrastar) henti okkur öfugum útúr skólanum. !!!
Svo fórum við upp í menntaskóla í þrautir og svo grillaðar pulsur.
Þar tók ég mig meðal annars til og barði Tobba í hausinn með stálpotti.....hann fékk ágætis kúlu...
Suðureyri beið okkar svo.. við skelltum okkur í sund þangað, og lágum þar í 3 tíma.
Svo hélt djammið áfram í Sigurðarbúð. Pöntuðum okkur pitsur og dönsuðum við
stórkostlega djass tónlist í boði Kristins Gauta.
Síðan skelltum við okkur í afmæli í golfskálanum hjá Helgu Lind og Bryndísi. Þar var troðið útúr dyrum og ég og Sigurgeir sömdum flottustu dansa í heimi !!!!
loksins lá leiðin á langþráð ball á Vaxon.is í Bolungarvík .... ég reyndar stoppaði stutt á því balli.
En dagurinn var hrein snilld og þakka ég kærlega fyrir mig :)
ps. Pottþétt lengsta blogg sem ég hef skrifað !!
ég ætlaði að setja inn myndir frá þessu en það er flókið, svo ég nennti því ekki.. en Edith tók fullt af skemmtilegum myndum, mæli með að kíkja á þær.
http://picasaweb.google.com/edithghansen/Dimission2007
Kv. Rúnar
Turdnugget
Svona í óspurðum fréttum átti ég hreint fínt páskafrí... kom beint frá heitu og seiðandi Algarve í frí hér á klakanum... fljótlega fór bærinn að fyllast af ullarsokka-emo-skríl frá öllum skotum landsins í tilefni af aldrei fór ég suður... ég leyfði mér reyndar ekki þann munað að standa þarna í kuldanum og svitalyktinni og hlusta á hljómsveitir á borð við "blonde redhead" sem vegna tæknivandræða (voru púaðir niður) spiluðu aðeins 3 lög eða svo... það hljómar kannski eins og ég hafi ekkert gert alla páskana þegar ég segi að ég fór heldur ekkert á skíði, en það er alveg kórrétt ég gerði voða lítið annað en að slappa af, éta páskaeg og mæta á böll....
Ég get ekki haft þetta langt því það er stór dagur á morgun.. þá er ég að sjálfsögðu að tala um aprílmót BÍ88 í innanhússknattspyrnu, og 7.flokkurinn minn tekur þátt... ég ætla að einblína á góðan sóknarleik til að tryggja að áhorfendur verði ekki fyrir vonbrigðum... og ég vil sja stemmara á pöllunum... en nóg um það... síðan vildi ég grípa tækifærið og minna fólk tímanlega á afmælð mitt 11. maí... en þá verður efnt til stórsamkvæmisfagnaðar þar sem "Harmónikkusveitin Stórir Svertingjar Og Hemmi", " Barry White" og fleiri leika, á meðan vel valdnir gestir gæða sér á Medester pylsum í boði Félagsbúsins í Vigur, einnig má benda á að góðvinur minn Christian Slater verður veislustjóri.... gestum sem náð hafa 20 ára aldri verður síðan boðið unaðlsegt Spænskt vín.... Ef einhver hefur hugmynd um hvar slík glæsi-veisla gæti verið er honum vinsamlegast bent á að hafa samband sem fyrst (118)... og þá verður eflaust íhugað hvort hann/hún fái að mæta...
Að því ógleymdu að í dag skrifaði C. Ronaldo unir 5 Jahre saming við stærsta félag heims, Manchester United... Já nú er sko gaman að vera til...
fleira er ekki í þættinum að sinni....... veriði sæl
Þrö P
Ţetta er búiđ ađ vera gaman...
blesskveðjasigurgeir
p.s. það veit enginn lykilorðið nema ég:D
flabb
Já góđa kvöldiđ
Sat hérna og hugsaði, "hei, hvað myndi gerast ef ég setti hérna inn smá færslu". Það sakar varla.
En já Lísa í Undralandi fer bara vel af stað. Frumsýndum á föstudaginn við miklar og góðar undirtektir áhorfenda sem gladdi hjarta mitt og hinna leikaranna. Rúnar sæti kom og var geysilega lukkulegur með spúsu sína við hlið sér.
Svo var önnur sýning á sunnudaginn. Hún var ekki eins orkumikil eins og er víst ákveðið lögmál í heimi leikhúsanna þar sem spennufallið á að vera mikið eftir frumsýningu, en svo á þetta víst að koma allt til baka á þriðju sýningu. Þrátt fyrir þetta "lögmál" var sýningin samt mjög góð og við fengum aftur góð viðbrögð frá áhorfendum, vorum meira að segja klöppuð upp í annað hneig eftir sýningu.
Já þessi sýning hefur bara farið mun betur af stað en ég þorði að vona. Finnst eins og það hafi verið í gær sem ég var í söngprufum fyrir þetta leikrit, magnað maður. Þetta er búið að vera virkilega strembinn febrúarmánuður en jafnframt skemmtilegur og ófá flippkvöldin á æfingum þar sem svefngalsinn og þreytan tók oftar en ekki yfirhöndina, en við misstum samt aldrei sjónar á því sem við ætluðum okkur og er það leikstjóranum Hrafnhildi Hafberg að langmestum hluta að þakka, alveg mögnuð þessi manneskja og á allt hrós skilið fyrir þessa sýningu.
Jæja ég hef grátið nóg við ritun þessarar færslu.
Takk fyrir mig.
Kormákur.
Halló..
punktur - ég fékk mér kóksopa um daginn og það var þannig að kókið var vont, ég skildi ekkert í því og fékk mér aftur og það var aftur vont, ég fékk mér svo aftur næsta dag og það var aftur vont, ég hafði aldrei lent í þessu áður.
punktur - síðasti punktur var soldið langur en ég fékk mér hlaup í sjoppu 3 bekkjar í dag, og hlaupið bragðaðist eins og vicks vaporub, kremið sem maður ber á sig þegar maður er kvefaður og vill losna við nefstíflu.
2 punktar eru meira en nóg, endilega deilið ykkar reynslu af slíkum atburðum sem ég hef lent í..
Árshátíðin var á föstudeginum 16 febrúar og var það ágætis skemmtun, ég skellti mér með fallegri stelpu uppá arminn og var það jafn yndislegt og það hljómar
Gæjarnir voru flestir þarna, en það vantaði þó Snævar, Sigþór, Magnús og Guðmund sem rétt man hverjir við erum, þannig að við vorum þarna 5 og kom þetta ágætlega út, fallegri helmingurinn á staðnum;) bújahh... en eftir ágæta súpu, misgóðann kjúlla, fallegan Loga Bergmann og æðislegan Halla Hró að ógleymdum... ég vil segja söng kennaranna þá var haldið heim á leið að pússa sig aðeins upp fyrir ballið. Við strákarnir enduðum að aldrei þessu vant heima hjá mér til að fá okkur smá djús og kleinur fyrir dansleikinn og í okkar venjulega pulsupartý þá endaði það að það voru þarna böns af gellum inná milli og var það náttúrulega frábært.. æðislegur félagsskapur, eftir fína drykkju og fleira var haldið á dansleik þar sem buff stóð fyrir dansi, þó án aðalsöngvarans sem ég var ekki sáttur við, en þeir redduðu sér þó alveg. Þetta endaði svo allt saman fallega. En þetta verður ekki lengra í dag... ChiChing...Well Hello Mr. Lincoln.. and the drinks are on me!!
Sigurgeir Sv. Gíslason


Guđmundur man hverjir viđ erum !
Hann mun þá geta verið með okkur á árshátíðinni sem verður haldin á föstudag.
Þá mun Logi Bergmann Meistarinn, fréttamaðurinn og sjarmör skemmta okkur yfir matnum. Svo verður haldið til Flateyrar af öllum öðrum stöðum á ball með Buffinu.
Vonandi skemmtum við okkur vel drengir mínir
Kv. Rúnar Joð
22 vetra
Svona eins og var þarna með 3ja matskeiða pizzuna, og þessháttar...
Þannig að takiði miðvikudagskvöldið frá!
OG svo ætlum við að hittast á föstudag eða laugardag á sama stað, og sötra mjöð í tilefni af þessum vetrum mínum!
Ég treysti á að ALLIR, líka þú Guðmundur, mæti! Þurfið ekki að mæta með gjöf, bara svo lengi sem ég fæ ykkur alla strákana saman :)






